Thursday, May 13, 2010

Gamlar sætar bjöllur

Nú er ég frekar nýlega orðin 16 ára og á að fá æfingarleyfið mitt núna á næstu dögum og er þar af leiðandi voða spennt : ) Ég og pabbi vorum svo eitthvað að ræða um þetta um daginn og hann spurði mig hvernig bíl ég myndi vilja fá mér í framtíðinni, þessu var ég nú ekki lengi að svara enda lengi búin að hafa það á hreinu!


Þessi er klárlega uppáhalds !






Svo varð ég nú að leyfa einum svona
sætum hippabíl að vera með ; )

xx
V

No comments: